Ný vefsíða opnuð!

1. apríl 2010 frá Vefstjóra

Velkomin á nýja heimasíðu Lagatorgs, sem er fyrst og fremst vefsíðusafn ætlað íslenskum lögfræðingum, laganemum og öðrum, sem þurfa að leita upplýsinga á vefnum tengdum lögfræði og lagaframkvæmd. Vefurinn, sem bar áður heitið Lögfræðihornið, hefur verið starfræktur óslitið í 14 ár frá aprílmánuði 1996 og er því fyrsti og langelsti vefur sinnar tegundar á Íslandi.

Vefviðmót það sem hér birtist er til bráðabirgða meðan unnið er að smíði nýrrar síðu og að sinni eru aðeins birtar takmarkaðar upplýsingar á síðunni. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem notendur kunna að verða fyrir tímabundið vegna þessa.

Með kveðju, Gunnar Pétursson